
[[ Tónlistin || Uffie - Pop The Glock {Curtis
Vodka Remix} ]]
Halló Fólk 
Það er búið að vera meget gaman hjá mér síðustu daga :]] ,, á
þriðjudaginn var ég ekki í prófum þannig að ég notaði daginn til að
læra && eftir læreríið þá fór ég til reykjavíkur. Fór á
hárgreiðslustofuna þar sem að þar var casting fyrir hártískusýningu
Tigi. Einhverjir kallar og ein kona frá London komu og voru að
pikka út stelpur fyrir þetta, eftir castingið þá fór ég á Rizzo
Pizzeria og keypti eina ,, aðeins og heita pizzu
Samt alveg
besta pizza sem að ég hef smakkað - ég og Ingi Þór erum nefninlega
komin með sameiginlega áhugamál, og það er pizza. Við verðum að
þróa þetta aðeins betur og smakka fleiri en þetta er allavega
áhugamálið okkar
hahah
Á miðvikudaginn vaknaði ég eldsnemma og
fór í sturtu, fór síðan í próf í dönsku klukkan átta. Gekk alveg
altilaji í því, && klukkan 9 þá fór ég í bæinn og beint á
Solid þar sem að ég var klippt mjög stutt, og þá meina ég mjöög
stutt, kem varla hárinu í teygju ! En það er altílaji. Nick klippti
mig og annar gaur sem að heitir e-ð sem ég kann ekki að skrifa lét
hárið mitt í margar litlar bylgjur. Var búin um 12 og fór þá niðrá
Nasa, og frá hálf 1 og til hálf 5 var minn hópur, sem að var Bed
Head hópurinn að æfa, vorum með 4 rútínur sem að við þurftum að æfa
en allt tókst á lokum. Það var pöntuð pizza og þarna var fullt af
nammi til að svala hungrinu
- Fötin sem að ég var í voru
bleikir, svartir og hvítir röndóttir sokkar, neon bleikar
sokkabuxur, blár og partly gegnsær sundbola look-a-like
samfestingur, fullt af bleikum armböndum, risastór bleikur
demantshringur && hálsmen - && síðan var
aðalatriðið en það var mitt risastóra afró !
- Sýningin gekk vel
& það var frítt áfengi og svona en ég þurfti að keyra heim og
fara í tvö próf daginn eftir þannig að það var bara eins og það var
;P
Í gær fór ég í tvö próf, jarðfræði um
morguninn og félagsfræði próf eftir hádegi ! Gekk alveg glimrandi -
eða svo til í báðum prófunum þannig að það var bara splendor. Ég
fór síðan á rúnt með Kristínu til 7, fengum blóm frá samfylkingunni
- jújú enn og aftur er ég að svíkja lit þvi að ég er jú
sjálfstæðismanneskja ! - Ég og Ingi átum síðan núðlur og nammi og
horfðum á júróvisjón þar sem að hann Eiríkur okkar landsmanna komst
ekki áfram, - piiiifff ! En það er bara svona ;P ,, í dag þáá
vaknaði ég bara eldsnemma á meðan að Ingi Þór svaf .. &&
nuna er hann vaknaður og þvi ætla ég ekki að hafa þetta mikið
lengra - þótt þegar langt sé ;P hahah

aþenaragna
;*